Hjúkrunarfræðingur - Egilsstaðir- heilsugæsla

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í afleysingu til 1.09.20 á heilsugæslustöð HSA á Egilsstöðum. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfshlutfall er 80% eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Almenn heilsugæsluþjónusta s.s. heilsuvernd og móttaka sjúklinga.

Hæfnikröfur

Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði.
Kostur er að viðkomandi hafi ljósmóðurmenntun eða heilsugæslusérnám.
Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika.
Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði.
Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 80 %
Umsóknarfrestur er til og með 04.11.2019

Nánari upplýsingar veitir

Guðbjörg Björnsdóttir - gudbjorg@hsa.is - 470-3000 & 861-5507
Jónína Guðrún Óskarsdóttir - jonina@hsa.is - 470-3053 & 895-2488


HSA Egilsst. Heilsugæsla
Lagarás 17
700 Egilsstaðir


Sækja um starf Til baka