Starf í þjónustudeild HSA - Egilsstaðir

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða starfsmann í ræstingar og þrif hjá þjónustudeild HSA á Egilsstöðum. Starfshlutfall er 50 - 70%. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. september eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Ræstingar og þrif hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands á Egilsstöðum.

Hæfnikröfur

Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.

HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 70 %
Umsóknarfrestur er til og með 26.08.2019

Nánari upplýsingar veitir

Þórarna Gró Friðjónsdóttir - thorarna@hsa.is - 470-3082 & 849-1455
Emil Sigurjónsson - emils@hsa.is - 470-3053 & 895-2488


HSA Egilsst. Sjúkrah. Ræsting
Lagarás 17
700 Egilsstaðir


Sækja um starf Til baka