Hjúkrunarfræðingur - Egilsstaðir- heilsugæsla

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing á heilsugæslustöð HSA á Egilsstöðum frá 1. janúar 2022 til 1. september 2022. Starfshlutfall er 90% eða eftir nánara samkomulagi. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Almenn heilsugæsluþjónusta s.s. skólahjúkrun, heilsuvernd og móttaka sjúklinga.

Hæfnikröfur

Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði. Kostur er að viðkomandi hafi heilsugæslusérnám. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 90 %
Umsóknarfrestur er til og með 20.12.2021

Nánari upplýsingar veitir

Guðbjörg Björnsdóttir - gudbjorg.bjornsdottir@hsa.is - 470-3000 & 861-5507
Jónína Guðrún Óskarsdóttir - jonina.g.oskarsdottir@hsa.is - 470-3053 & 895-2488


HSA Egilsst. Heilsugæsla
Lagarás 17
700 Egilsstaðir


Sækja um starf Til baka