Hjúkrunarfræðingur- Fjarheilbrigðisþjónusta - Austurland

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing á heilsugæslusviði HSA til að sinna þróun, innleiðingu og framkvæmd á fjarheilbrigðisþjónustu á Austurlandi frá 1. september 2019. Starfshlutfall er 50% eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þróun, innleiðing og framkvæmd fjarheilbrigðisþjónustu innan heilsugæslusviðs HSA.

Hæfnikröfur

Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði.
Áhugi á uppbyggingu fjarheilbrigðisþjónustu í heilsugæslu
Reynsla af teymisvinnu og góða almenn tölvufærni.
Kostur er að viðkomandi hafi sérnám í heilsugæsluhjúkun
Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika.
Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði.
Íslenskukunnátta áskilin.
Almenn ökuréttindi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 50 %
Umsóknarfrestur er til og með 19.08.2019

Nánari upplýsingar veitir

Nína Hrönn Gunnarsdóttir - ninahronn@hsa.is - 470-3054 & 862-1030
Jónína Guðrún Óskarsdóttir - jonina@hsa.is - 470-3081 & 865-5737


HSA Stjórn og skrifstofa
Lagarás 22
700 Egilsstaðir


Sækja um starf Til baka