Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing á heilsugæslusviði HSA með starfsstöð á Borgarfirði eystri frá 1. september 2019. Starfshlutfall er 50% eða eftir nánara samkomulagi.
Almenn heilsugæsluþjónusta s.s. heilsuvernd, móttaka sjúklinga.
Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði.
Kostur er að viðkomandi hafi heilsugæslusérnám eða reynslu af heilsugæsluhjúkrun.
Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika.
Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði.
Íslenskukunnátta áskilin.
Almennt ökuleyfi
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.
Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 50 %
Umsóknarfrestur er til og með 19.08.2019
Guðbjörg Björnsdóttir - gudbjorg@hsa.is - 470-3000 & 861-5507
Jónína Guðrún Óskarsdóttir - jonina@hsa.is - 470-3081 & 865-5737
HSA Egilsst. Heilsugæsla
Lagarás 17
700 Egilsstaðir