Deildarstjóri hjúkrunar - Egilsstaðir - Hjúkrunarheimilið Dyngja

Laus er til umsóknar staða deildarstjóra á Hjúkrunarheimilinu Dyngju Egilsstöðum.
Hjúkrunarheimilið Dyngja er 36 íbúa hjúkrunarheimili. Hjúkrunarheimilið er tvískipt, hvor hæð með um 18 íbúa.
Um er að ræða 100% starf og dagvinnu. Staðan veitist frá 1. september 2019.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfinu felst m.a. innleiðing nýrrar hjúkrunarstefnu, að leiða faglegt starf og umbætur á deildinni og að halda utan um þjónustu við íbúa heimilisins. Deildarstjóri hefur rekstrarlega ábyrgð og annast m.a. áætlunargerð. Hann stýrir mannauði deildarinnar.

Hæfnikröfur

Íslenskt hjúkrunarleyfi.
Tveggja ára reynsla af hjúkrun nauðsynleg.
Framhaldsmenntun á sviði öldrunarhjúkrunar og/eða stjórnunar er kostur.
Viðkomandi þarf að búa yfir framúrskarandi samskiptahæfileikum, leiðtogahæfni, víðsýni og getu til að takast á við breytingar.
Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika.
Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 10.05.2019

Nánari upplýsingar veitir

Nína Hrönn Gunnarsdóttir - ninahronn@hsa.is - 470-3054 & 862-1030
Þórarna Gró Friðjónsdóttir - thorarna@hsa.is - 470-3028 & 849-1455


HSA Egilsst. Dyngja
Lagarás 17
700 Egilsstaðir


Sækja um starf Til baka