Aðstoðarmaður í eldhúsi - Egilsstaðir - HSA

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða aðstoðarmann í mötuneytiseldhús sitt á Egilsstöðum. Starfshlutfall er 80% eða skv. samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Fjölbreytt störf í eldhúsi.

Hæfnikröfur

Æskileg er reynsla af störfum í eldhúsi. Lögð er áhersla á stundvísi, metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 25.02.2019

Nánari upplýsingar veitir

Vilmundína L Kristjánsdóttir - eldhuseg@hsa.is - 470-3012 & 847-3129
Emil Sigurjónsson - emil@hsa.is - 470-3053 & 895-2488


HSA Egilsst. Sjúkrah. Eldhús
Lagarás 17
700 Egilsstaðir


Sækja um starf Til baka