Móttökuritari - Seyðisfjörður - HSA - SUMARAFLEYSING 2019

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða móttökuritara í sumarafleysingu á heilsugæsluna á Seyðisfirði. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Símsvörun og vinna með afgreiðslukerfi við móttöku skjólstæðinga heilsugæslunnar.

Hæfnikröfur

Stúdentspróf er æskilegt.
Þekking og vald á að vinna upplýsingar á tölvutæku formi, almenn ökuréttindi, kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli, tölulæsi og færni í upplýsinga- og fjarskiptatækni.
Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 25.02.2019

Nánari upplýsingar veitir

Stefanía Stefánsdóttir - debby@hsa.is - 470-3060 & 846-5037
Emil Sigurjónsson - emil@hsa.is - 470-3053 & 895-2488


HSA Seyðisf. Heilsugæsla
Suðurgata 8
710 Seyðisfjörður


Sækja um starf Til baka