Aðstoðarmatráður - Neskaupstaður - Eldhús

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða aðstoðarmatráð í mötuneyti Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað tímabundið í 100% starfshlutfall í þrjá mánuði og í framhaldinu mögulega í 50% starfshlutfall sem aðstoðarmatráð og 50% starfshlutfall sem aðstoðarmann í eldhúsi, samkvæmt nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða matseld fyrir sjúkrahúsið og almenn störf í eldhúsi.

Hæfnikröfur

Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi og skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Starfsmannafélag Fjarðabyggðar hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 25.02.2019

Nánari upplýsingar veitir

Eva Mjöll Þorfinnsdóttir - evam@hsa.is - 470-1482 & 776-2443
Emil Sigurjónsson - emil@hsa.is - 470-3053 & 895-2488


HSA Nesk. Sjúkrah. Eldhús
Mýrargötu 20
740 Neskaupstaður


Sækja um starf Til baka