Hjúkrunarfræðingur -Egilsstaðir -Hjúkrunarheimilið Dyngja

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa sem fyrst eða skv. samkomulagi á Hjúkrunarheimilið Dyngju.

Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi.

Hjúkrunarheimilið Dyngja er 36 íbúa hjúkrunarheimili. Hjúkrunarheimilið er tvískipt, hvor hæð með um 18 íbúa.

Helstu verkefni og ábyrgð

Fagleg vinna hjúkrunarfræðings.

Hæfnikröfur

Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 13.05.2019

Nánari upplýsingar veitir

Lilja Vigfúsdóttir - liljavig@hsa.is - 470-3040 & 848-6886
Arney Eir Einarsdóttir - arneyeir@hsa.is - 470-3040 & 865-1054


HSA Egilsst. Dyngja
Lagarás 17
700 Egilsstaðir


Sækja um starf Til baka