Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins óskar eftir almennum starfsmanni í sumarafleysingar frá og með 15. maí nk. eða eftir nánara samkomulagi. Möguleiki er á áframhaldandi ráðningu. Starfshlutfall er 40-100%. Um er að ræða starf við heimahjúkrun á dag-, kvöld- og helgarvöktum.
Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ, Mosfellsbæ og Hafnarfirði og er með aðsetur í nýju og glæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun sem er sérsniðin að þörfum hvers og eins þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf eru höfð að leiðarljósi.
Starfið er mjög fjölbreytt og gefandi. Starfsmaður aðstoðar við umönnun ásamt því að veita skjólstæðingum félagslegan stuðning. Hann vinnur náið í teymi ásamt sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum þar sem teymisstjóri sem er hjúkrunarfræðingur fer fyrir teyminu. Starfsmaður mun hafa bifreið til afnota á vinnutíma.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 40 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 13.05.2024
Hildur Sigurjónsdóttir - hildur.sigurjonsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6900
HH Heimahjúkrun á Suðursvæði, hjúkrun
Miðhraun 4
210 Garðabær