Hjúkrunarfræðingur - Heimahjúkrun HH

Heimahjúkrun HH leitar eftir hjúkrunarfræðingum til starfa. Um er að ræða ótímabundin störf þar sem starfshlutfall er frá 20 -100% eða eftir nánara samkomulagi. Vinnufyrirkomulag er samkomulagsatriði en til greina kemur bæði dagvinna og vaktavinna. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði og er með aðsetur í nýju og stórglæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ.  Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er haft að leiðarljósi. Einstaklingsmiðuð heimahjúkrun er sérsniðin að þörfum hvers og eins.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hjúkrunarfræðingur vinnur náið með teymisstjóra. Starfssvið hjúkrunarfræðings í heimahjúkrun er að veita víðtæka hjúkrun í heimahúsum vegna langvinnra sjúkdóma, andlegrar og líkamlegrar skerðingar. Hjúkrunarfræðingur styður við einstaklinga og aðstandendur þeirra ásamt því að skipuleggja og veita þá hjúkrun sem þörf er á hverju sinni. Hann er einnig í samskiptum og samvinnu við aðrar sjúkrastofnanir og heilbrigðisstéttir með hagsmuni skjólstæðings að leiðarljósi.

Hæfnikröfur

Fríðindi í starfi: 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Stéttarfélag er Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram leyfisbréf og staðfestar upplýsingar um menntun. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. 

Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið.

Starfshlutfall er 20 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 06.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Hildur Sigurjónsdóttir - hildur.sigurjonsdottir@heilsugaeslan.is - 513 6900


HH Heimahjúkrun á Suðursvæði, hjúkrun
Miðhraun 4
210 Garðabær


Sækja um starf Til baka