Viltu slást í hópinn og taka þátt í spennandi uppbyggingu?
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir sjúkraþjálfara í nýtt og spennandi starf í heimahjúkrun. Heimahjúkrun HH er staðsett í nýju og stórglæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4. Heimahjúkrun HH sér um hjúkrun í heimahúsum fyrir íbúa í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Mosfellsumdæmi. Um er að ræða ótímabundið starf í dagvinnu. Starfshlutfall getur verið frá 50-100%. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 15. maí n.k. eða eftir nánara samkomulagi.
Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er höfð að leiðarljósi. Einstaklingshæfð heimahjúkrun er sérsniðin að þörfum hvers og eins.
Sjúkraþjálfari vinnur í þverfaglegu teymi við að aðstoða skjólstæðinga við að vera eins virkir og sjálfstæðir í daglegu lífi og hægt er, þannig að þeir geti verið sem lengst sjálfbjarga á eigin heimili. Sjúkraþjálfari metur og greinir líkamlega færni og heilsu skjólstæðings sem og stoðkerfisvandamál. Hann veitir stuðning og ráðgjöf til skjólstæðinga og aðstandenda þeirra varðandi hreyfingu og þjálfun sem stuðla að færni skjólstæðings til að sinna daglegum þörfum sínum. Sjúkraþjálfari skipuleggur og veitir þjónustu á sínu fagsviði í samráði við teymi. Lögð er áhersla á aðgengilega þjónustu og að skjólstæðingar séu virkir í meðferð. Sjúkraþjálfari tekur virkan þátt í þverfaglegu samstarfi, handleiðslu, fræðslu og starfsmannafundum. Hann vinnur sjálfstætt við athuganir mat og ráðgjöf.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram leyfisbréf og staðfestar upplýsingar um menntun. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 50 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 13.05.2024
Hildur Sigurjónsdóttir - hildur.sigurjonsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6900
HH Heimahjúkrun á Suðursvæði, hjúkrun
Miðhraun 4
210 Garðabær