Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Sólvangi

Laust er til umsóknar starf sérfræðings í heimilislækningum við Heilsugæsluna Sólvangi. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi. 

Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf í spennandi starfsumhverfi þar sem áhersla er á nýsköpun og framþróun. Til greina kemur að ráða áhugasaman almennan lækni sem hefur hug á sérnámi í heimilislækningum, fáist ekki sérfræðingur í starfið.

Á heilsugæslustöðinni eru starfandi sérfræðingar í heimilislækningum ásamt sérnámslæknum, sálfræðingum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum og riturum. Heilsugæslunni Sólvangi er fyrst og fremst ætlað að veita íbúum Hafnarfjarðar þjónustu en allir eru velkomnir á stöðina. 

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið heimilislæknis er víðtækt og felst m.a. í almennum lækningum, heilsuvernd, vaktþjónustu og kennslu nema. Hann veitir fræðslu og upplýsingar og leiðbeinir skjólstæðingum og aðstandendum. Heimilislæknir er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi. 

Hæfnikröfur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf, vísinda- og rannsóknarstörf. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 80 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2024

Nánari upplýsingar veitir

Berglind Gunnarsdóttir - berglind.gunnarsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6222
Heiða Sigríður Davíðsdóttir - Heida.Sigridur.Davidsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6221


HH Sólvangi lækningar
Sólvangsvegi 2-3
220 Hafnarfjörður


Sækja um starf Til baka