Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins óskar eftir hjúkrunarnemum til starfa í sumarstörf hjá stofnuninni. Heilsugæslan er spennandi og fjölskylduvænn vinnustaður sem býður upp á lærdómsríkt starfsumhverfi.
Við erum að leita að hjúkrunarnemum sem eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt, spennandi og skemmtileg verkefni innan heilsugæslunnar. Við bjóðum upp á einstaklingsmiðaða aðlögun sem tekur mið af áhugasviði hvers og eins. Mikið er af námstækifærum í heilsugæslunni meðal annars skyndimóttaka, opin móttaka, ung- og smábarnavernd, heilsuvernd og forvarnir. Tekið verður tillit til námsins við skipulag starfsins.
Fríðindi tengt starfinu
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 20 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 15.05.2024
Rósa Eiríksdóttir - rosa.eiriksdottir@heilsugaeslan.is - 513-5034
HH Svið mannauðs- og nýliðunar
Álfabakki 16
109 Reykjavík