Ljósmóðir - að vera á skrá hjá HSU
- Hér geta ljósmæður með starfsleyfi skráð almenna starfsumsókn.
- Almennum starfsumsóknum er ekki svarað sérstaklega.
- Þær hverfa úr kerfinu eftir 6 mánuði frá umsókn.
- Sækja þarf um auglýst störf sérstaklega.
- Bent er á eftirfarandi: ,, Samkvæmt lögum ber ríkisstofnunum að auglýsa laus störf. Undanþágur frá auglýsingaskyldu eru takmarkaðar við ráðningar til skemmri tíma en tveggja mánaða, afleysingar sem vara skulu skemur en 12 mánuði og ráðningar í störf sem auglýst hafa verið með opinni auglýsingu innan s.l. 6 mánaða".
Helstu verkefni og ábyrgð
- Á ljósmæðravaktinni er mæðravernd kvenna búsettra á Selfossi og nágrenni.
- Á ljósmæðravaktinni er mæðravernd á vegum deildarinnar á öllum heilsugæslum HSU.
- Unnið er á dagvöktum alla virka daga og um helgar. Bakvaktir eru um kvöld og nætur. Það eru alltaf 2 ljósmæður á bakvakt.
- Símaþjónusta er á deildinni alla daga en bráðasímtölum sinnt á bakvöktum.
Hæfnikröfur
- Umsækjendur skulu hafa lokið ljósmæðramenntun og hjúkrunarmenntun er æskileg.
- Starfsleyfi landlæknis.
- Gerð er krafa um sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi.
- Framúrskarandi samskiptahæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.
- Umsókninni skulu fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.
Starfshlutfall er 20 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 01.12.2028
Nánari upplýsingar veitir
Sækja um starf
Til baka