Klínískur lyfjafræðingur
Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða klínískan lyfjafræðing til starfa. Um er að ræða nýtt starf innan stofnunarinnar og því spennandi verkefni fyrir réttan aðila að móta starfið með starfsfólki stofnunarinnar. Aðalstarfsstöð er á Selfossi en einnig er hægt að hugsa sér að starfið væri að hluta til í fjarvinnu.
Við leitum því að öflugum klínískum lyfjafræðingi með sterka þjónustulund og færni til að móta nýtt verklag.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands er góður vinnustaður með mikinn metnað til frekari afreka
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf til lækna og hjúkrunarfræðinga eftir því sem við á
- Er verkefnastjóri lyfjamála á HSU
- Skráning lyfja við komu og lyfjarýni
- Aðstoða við að koma á miðlægu lyfjakorti
- Ber ábyrgð á að rita þau gæðaskjöl sem þurfa að vera til staðar á stofnuninni, endurskoða eftir þörfum og uppfæra
- Yfirfara lyfjalista og benda á möguleg vandamál tengdum milliverkunum, ofnæmi og fjöllyfjanotkun
- Fagleg ráðgjöf til heilbrigðisstarfsfólks og skjólstæðinga um lyfjatengd mál
- Þátttaka í þjálfun nema og nýrra starfsmanna eftir því sem við á
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfnikröfur
- Íslenskt starfsleyfi sem lyfjafræðingur
- Framhaldsnám í klínískri lyfjafræði
- Reynsla af klínískri vinnu á spítala, heilsugæslu eða hjúkrunarheimili æskileg
- Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Áreiðanleiki, jákvæðni, sveigjanleiki og árangursmiðað viðhorf
- Góð íslensku- og tölvukunnátta, sem og hæfni í tjáningu í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Lyfjafræðingafélag Íslands hafa gert.
Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 09.02.2023
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Böðvarsson, Framkvæmdastjóri lækninga og framkvæmdastjóri sjúkrasviðs - sigurdur.bodvarsson@hsu.is
Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir, Framkvæmdastjóri hjúkrunar og framkvæmdastjóri heilsugæslu- og forvarnarsviðs - baldvina.y.hafsteinsdottir@hsu.is
HSU Lyflækningadeild lækningar
Árvegi
800 Selfoss
Sækja um starf
Til baka