Matreiðslumaður óskast til starfa á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi
- Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi óskar eftir að ráða matreiðslumann til starfa við hlið yfirmatreiðslumanns eldhússins. Um er að ræða framtíðarstarf frá og með 1. október 2022 eða eftir samkomulagi
- Unnið er á vöktum frá 07-15, að jafnaði 4 virka daga og aðra hverja helgi
- Eldhús HSU á Selfossi sér um matargerð (almennt fæði og sérfæði) og máltíðaþjónustu fyrir sjúklinga og starfsmenn stofnunar á Selfossi.
- Á stofnuninni verða 102 hjúkrunarrými, 24 sjúkrarými auk dagdeildar- og skammtímadvalarrýma. Um 120 hádegisverðir fyrir starfsmenn eru afgreiddir frá eldhúsinu
Helstu verkefni og ábyrgð
- Matreiðsla fyrir sjúklinga og starfsmenn
- Afleysing yfirmatreiðslumanns
- Verkstjórn í eldhúsi í fjarveru yfirmatreiðslumanns
Hæfnikröfur
- Sveinspróf í matreiðslu
- Þekking á næringarfræði
- Reynsla af matreiðslu í mötuneyti, kostur
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði,sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi hafa gert.
Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 03.10.2022
Nánari upplýsingar veitir
Sækja um starf
Til baka