Starfsfólk í umönnun óskast á glænýtt hjúkrunarheimili, Móberg, HSU á Selfossi frá og með 1.október 2022
- Starfsfólk í umönnun óskast til starfa á glænýtt hjúkrunarheimili HSU, Móberg, á Selfossi frá og með 1. október 2022, um er að ræða framtíðarstörf
- Heimilið hefur fimm almennar hjúkrunareiningar þar sem 12 einstaklingar koma til með að búa á hverri einingu
- Starfsemi heimilisins byggir á hugmyndafræði Eden stefnunnar og lagt verður upp úr einstaklingsbundinni endurhæfingu íbúa í leik og starfi
Helstu verkefni og ábyrgð
- Um er að ræða fjölbreytt starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki
- Mikið er lagt upp úr góðu þverfaglegu samstarfi þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi
- Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á þrískiptum vöktum og aðra hvora helgi. Skipulag vakta er í samráði við deildarstjóra
- Starfshlutfall er samkomulagsatriði við deildarstjóra
Hæfnikröfur
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, áreiðanleiki og síðast en ekki síst jákvætt viðhorf
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Báran, stéttarfélag hafa gert.
Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um fyrri störf og meðmæli
Starfshlutfall er 20 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 30.09.2022
Nánari upplýsingar veitir
Sækja um starf
Til baka