Sálfræðingur óskast í tímabundið starf á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Sálfræðingur óskast til starfa á Heilbrigðisstofnun Suðurlands frá 15. október 2021 í eitt ár.
Um er að ræða fullt starf en lægra starfshlutfall kemur til greina. Megin starfsstöð er á Selfossi. Starfið veitist frá 15. október 2021 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Meðferð barna og unglinga að átján ára aldri auk ráðgjafar til foreldra.
- Þátttaka í þverfaglegu geðheilsuteymi HSU þar sem veitt er einstaklings- og hópmeðferð auk reglulegrar fræðslu.
- Sálfræðingar HSU sinna að auki ráðgjöf og meðferð í mæðr og ungbarnavernd, veita áfallaaðstoð eftir atvikum og taka þátt í teymisvinnu innan og utan stofnunar.
Hæfnikröfur
- Starfsleyfi landlæknis
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af meðferð, ráðgjöf og hópastarfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
- Umsókn skal skilað rafrænt á vef HSU - www.hsu.is undir flipanum laus störf
- Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi, fyrri störf.
- Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands við ráðningu í starfið.
- Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 50 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 01.10.2021
Nánari upplýsingar veitir
Sækja um starf
Til baka