Heimilislæknir óskast á heilsugæsluna í Hveragerði og Ölfusi

Staða sérfræðilæknis á heilsugæslunni í Hveragerði og Ölfusi er laus til umsóknar

Um er að ræða fjölbreytta stöðu þar sem starfstöð er ýmist í Hveragerði eða Þorlákshöfn

Helstu verkefni og ábyrgð

Almennar heilsugæslulækningar og heilsuvernd 

Fræðsla til skjólstæðinga og aðstandenda 

Vaktþjónusta (staðsett á Selfossi)

 Þátttaka í verkefnum innan stofnunarinnar

Hæfnikröfur

Fullgilt íslenskt lækningaleyfi 

Sérfræðiréttindi æskileg en til greina kemur að ráða lækni sem ekki hefur öðlast sérfræðiréttindi 

Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum 

Hæfni í tjáningu í ræðu og riti 

Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð 

Áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt samkomulagi Umsókn skal skilað rafrænt á vef HSU - www.hsu.is undir flipanum lausar stöður Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi, fyrri störf.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 27.09.2021

Nánari upplýsingar veitir

Ómar Ragnarsson - omar.ragnarsson@hsu.is
Ómar Ragnarsson - omar.ragnarsson@hsu.is


HSU Hveragerði lækningar
Breiðumörk 25b
810 Hveragerði


Sækja um starf Til baka