Hjúkrunarfræðingur óskast í fasta stöðuá sjúkradeild HSU í Vestmannaeyjum. Starfshlutfall 70 - 100 %. Unnið er á þrískiptum vöktum og aðra hverja helgi.
Um er að ræða fjölbreytt, krefjandi starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki. Mikið er lagt upp úr góðri þverfaglegri samvinnu þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldu þeirra er höfð að leiðarljósi.
Deildin er blönduð 21 rúma deild sem nær yfir hjúkrun flestra sjúklingahópa, þar af eru 9 hjúkrunarrými. Á sjúkradeildinni er einnig dagdeild lyfjagjafa.
Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun
Starfsleyfi landlæknis
Fjölbreytt starfsreynsla æskileg
Frumkvæði, áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Sótt er um starfið rafrænt á heimasíðu HSU, veffang:www.hsu.is undir flipanum laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 70 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 06.05.2019
Arna Huld Sigurðardóttir - arna.huld.sigurdardottir@hsu.is - 432-2600
HSU Ve Hjúkrun lyflækninga
Sólhlíð 10
900 Vestmannaeyjar