Hjúkrunarfræðingur óskast í sumarafleysingar á sjúkradeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands Vestmannaeyjum.

Hjúkrunarfræðingur óskast í sumarafleysingar á sjúkradeild HSU í Vestmannaeyjum. Starfshlutfall og skipulag vakta í samráði við deildarstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða fjölbreytt, krefjandi starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki. Mikið er lagt upp úr góðri þverfaglegri samvinnu þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldu þeirra er höfð að leiðarljósi.

Deildin er blönduð 21 rúma deild sem nær yfir hjúkrun flestra sjúklingahópa, þar af eru 9 hjúkrunarrými. Á sjúkradeildinni er einnig dagdeild lyfjagjafa.

Hæfnikröfur

Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun
Starfsleyfi landlæknis
Fjölbreytt starfsreynsla æskileg
Frumkvæði, áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Sótt er um starfið rafrænt á heimasíðu HSU, veffang:www.hsu.is undir flipanum laus störf.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 50 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 29.04.2019

Nánari upplýsingar veitir

Arna Huld Sigurðardóttir - arna.huld.sigurdardottir@hsu.is - 432-2600


HSU Ve Hjúkrun lyflækninga
Sólhlíð 10
900 Vestmannaeyjar


Sækja um starf Til baka