Hjúkrunarfræðingur - sérnámsstaða

Laus er til umsóknar 80% sérnámsstaða hjúkrunarfræðings í heilsugæsluhjúkrun. Staðan er veitt frá 1. ágúst 2019 til eins árs.

Sérnám í heilsugæsluhjúkrun er í samstarfi við Háskólann á Akureyri. Námið samanstendur af fræðilegu námi við Háskólann á Akureyri og klínískri þjálfun á heilsugæslustöð undir handleiðslu lærimeistara. Námið er skipulagt til eins árs og lýkur með diplóma gráðu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Efla hæfni hjúkrunarfræðinga, meðal annars í þverfaglegu samstarfi á heilsugæslustöð.

Móta viðhorf og sýn til þjónustu heilsugæslunnar í komandi framtíð

Veita nemendum tækifæri til að rýna í og innleiða gagnreynda starfshætti í daglegu starfi undir handleiðslu lærimeistara á heilsugæslustöð.

Hæfnikröfur

Almennt hjúkrunarleyfi, BS gráða
(lágmarkseinkunn 7,25).

Viðkomandi sé starfandi á heilsugæslustöð.

Skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi.

Hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilbrigðissteofnunar Suðurlands við ráðningu.

Sækja skal um stöðuna á www.hsu.is undir flipanum "laus störf".

Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Cecilie Björgvinsdóttur, mannauðsstjóra HSU, við Árveg, 800 Selfoss

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um hjúkrunarmenntun ásamt staðfestu afriti af opinberu starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur.

Starfshlutfall er 80 %
Umsóknarfrestur er til og með 29.04.2019

Nánari upplýsingar veitir

Anna María Snorradóttir - anna.maria.snorradottir@hsu.is - 432-2000
Unnur Þormóðsdóttir - unnur.thormodsdottir@hsu.is - 432-2000


HSU Hjúkrun HgS
Árvegi
800 Selfoss


Sækja um starf Til baka