Sjúkraliðar í sumarafleysingar á Heilsugæslu Selfoss

Óskað er eftir sjúkraliðum í sumarafleysingar. Um er að þrjár 80% stöður.

Á heilsugæslustöðinni er veitt öll almenn heilsugæsluþjónusta að meðtalinni heimahjúkrun.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sjúkraliðar starfa í heimahjúkrun og öðrum þeim störfum sem tilheyra stöðinni sjálfri s.s. að aðstoða í hjúkrunarmóttökum, sjá um ljósameðferðir, gera rannsóknir o.fl. Upptökusvæði stöðvarinnar í heimahjúkrun sjúkraliða er Árborg, Hveragerði, Ölfus, Grafningur og Flóahreppur.

Mikið er lagt upp úr góðri samvinnu allra starfshópa þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi.
Um er að ræða fjölbreytt starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki.

Hæfnikröfur

Sjúkraliðanám frá viðurkenndri menntastofnun
Reynsla af störfum í heimahjúkrun æskileg
Þekking á Sögu-kerfi
Frammúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Unnið er á tvískiptum vöktum og að jafnaði þriðju hverja helgi.

Umsókn skal skilað rafrænt á vef HSU - www.hsu.is undir flipanum laus störf.

Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi, fyrri störf.

Starfshlutfall er 80 %
Umsóknarfrestur er til og með 05.03.2019

Nánari upplýsingar veitir

Unnur Þormóðsdóttir - unnur@hsu.is - 4322160
Anna María Snorradóttir - anna.maria.snorradottir@hsu.is - 432-2000


HSU Hjúkrun HgS
Árvegi
800 Selfoss


Sækja um starf Til baka