Móttökuritari

Laust er til umsóknar 75% starf móttökuritara við Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum. Um er að ræða framtíðarstarf. Starfið veitist frá 15. apríl 2019 eða samvæmt nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Móttaka, afgreiðsla og samskipti við skjólstæðinga.
Símsvörun, ýmiss konar umsýsla og skráning gagna auk samskipta við aðrar deildir HSU.

Hæfnikröfur

Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskilegt.
Starfið krefst hæfni og lipurðar í samskiptum, trúmennsku og nákvæmni í vinnubrögðum.
Viðkomandi þarf að hafa góð tök á vinnu við tölvur.
Viðkomandi þarf að hafa gott vald á íslensku máli og þarf að geta átt tjáskipti á ensku.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Starfsmannafélag Vestmannaeyjabæjar hafa gert.
Um er að ræða dagvinnu.

Sækja skal um stöðuna á www.hsu.is undir laus störf.

Náms- og starfsferilskrá fylgi umsókn.

Starfshlutfall er 75 %
Umsóknarfrestur er til og með 04.03.2019

Nánari upplýsingar veitir

Björn Steinar Pálmason - bjorn.steinar.palmason@hsu.is - 432-2006
Jóna Björgvinsdóttir - jona.bjorgvinsdottir@hsu.is - 432-2610


HSU Ve Móttaka - læknaritun
Sólhlíð 10
900 Vestmannaeyjar


Sækja um starf Til baka