Sjúkraliði óskast í sumarafleysingar á sjúkradeild
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Vestmannaeyjum
Um er að ræða fjölbreytt, krefjandi starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki. Mikið er lagt upp úr góðri þverfaglegri samvinnu þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldu þeirra er höfð að leiðarljósi.
Deildin er blönduð 21 rúma deild sem nær yfir hjúkrun flestra sjúklingahópa, þar af eru 9 hjúkrunarrými. Á sjúkradeildinni er einnig dagdeild lyfjagjafa.
Unnið er á þrískiptum vöktum og aðra hvora helgi.
Sjúkraliðamenntun frá viðurkenndri menntastofnun
Starfsleyfi landlæknis / staðfesting menntastofnunar á framvindu náms
Frammúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal skilað rafrænt á vef HSU - www.hsu.is undir flipanum lausar stöður.
Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi, fyrri störf.
Starfshlutfall er 50 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 11.03.2019
Arna Huld Sigurðardóttir - arna.huld.sigurdardottir@hsu.is - 432-2600
HSU Ve Hjúkrun lyflækninga
Sólhlíð 10
900 Vestmannaeyjar