Hjúkrunarfræðingur óskast í sumarafleysingu á heilsugæsluna í Hveragerði og Þorlákshöfn

Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa í sumarafleysingu á Heilsugæsluna í Hveragerði og Þorlákshöfn.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða fjölbreytt starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki.

Mikið er lagt upp úr góðri samvinnu allra starfshópa þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi.

Heilsugæslustöðin í Hveragerði og Þorlákshöfn veitir alla almenna heilsugæsluþjónustu og þjónar um 4500 íbúum.

Hæfnikröfur

Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun
Starfsleyfi landlæknis
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn skal skilað rafrænt á vef HSU - www.hsu.is undir flipanum lausar stöður.

Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi og fyrri störf.

Starfshlutfall er 50 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 25.02.2019

Nánari upplýsingar veitir

Sólrún Auðbertsdóttir - solrun.audbertsdottir@hsu.is - 432-2400
Anna María Snorradóttir - anna.maria.snorradottir@hsu.is - 432-2000


HSU Hveragerði hjúkrun
Breiðumörk 25b
810 Hveragerði


Sækja um starf Til baka