Yfirmatreiðslumaður

Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi óskar eftir að ráða yfirmatreiðslumann í framtíðarstarf frá og með 1. maí 2019.

Um er að ræða 100 % starf. Unnið er virka daga frá 07-15.

Við leitum að sjálfstæðum leiðtoga í eldhús HSU á Selfossi. Yfirmatreiðslumaður eldhússins hefur yfirumsjón með og skipuleggur daglegan rekstur þess.

Eldhús HSU á Selfossi sér um matargerð (almennt fæði og sérfæði) og máltíðaþjónustu fyrir sjúklinga og starfsmenn stofnunar á Selfossi.

Markmið starfseminnar er að gæta hagkvæmni og tryggja öryggi matvæla og vinnuferla þannig að framleiðsla og þjónusta sé til fyrirmyndar.

Á stofnuninni eru 42 hjúkrunarrými, 18 sjúkrarými auk dagdeildar- og skammtímadvalarrýma. Um 90 hádegisverðir fyrir starfsmenn eru afgreiddir frá eldhúsinu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Yfirumsjón með eldhúsi samkvæmt starfslýsingu
Matreiðsla fyrir sjúklinga og starfsmenn
Verkstjórn í eldhúsi
Innkaup og gerð matseðla
Birgðarhald og skráningar í eldhúsi
Starfsmannahald í samráði við framkvæmdastjóra
Gerð vaktaskýrslna

Hæfnikröfur

Sveinspróf í matreiðslu
Þekking á næringarfræði
Reynsla af matreiðslu í mötuneyti
Stjórnunarreynsla
Góð samskiptahæfni
Tölvukunnátta
Frumkvæði,sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi hafa gert.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 22.02.2019

Nánari upplýsingar veitir

Anna María Snorradóttir - anna.maria.snorradottir@hsu.is - 4322000


HSU Eldhús
Árvegi
800 Selfoss


Sækja um starf Til baka