Hjúkrunarfræðingar óskast á Heilsugæslustöð Selfoss

Lausar eru til umsóknar tvær 100% stöður hjúkrunarfræðinga í heilsugæsluhjúkrun á heilsugæslustöðinni á Selfossi, æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem allra fyrst. Störfin er til 31. ágúst 2020 með möguleika á fastráðningu eftir það.

Helstu verkefni og ábyrgð

Á heilsugæslustöðinni er veitt öll almenn heilsugæsluþjónusta að meðtalinni heimahjúkrun.
Unnið er í teymisvinnu þar sem hjúkrunarfræðingar eru í framlínunni í samskiptum við skjólstæðinga stöðvarinnar. Hjúkrunarfræðingar meta, forgangsraða og veita meðferð þegar við á.
Mikið er lagt upp úr góðri samvinnu allra starfshópa þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi.

Hæfnikröfur

Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun.
Starfsleyfi landlæknis.
Skilyrði fyrir ráðningu er að minnsta kosti tveggja ára starfsreynsla, viðkomandi verður að geta sinnt sérhæfðum hjúkrunarverkefnum.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæð vinnubrögð.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Sækja skal um stöðuna á www.hsu.is undir lausar stöður.



Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 20.02.2019

Nánari upplýsingar veitir

Unnur Þormóðsdóttir - unnur@hsu.is - 432-2000


HSU Hjúkrun HgS
Árvegi
800 Selfoss


Sækja um starf Til baka