Heilsárslandvarsla á Gullfoss- og Geysissvæði

Umhverfisstofnun óskar eftir að ráða heilsárslandvörð á Gullfoss- og Geysissvæði.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur í sér umsjón og eftirlit með náttúruverndarsvæðunum Gullfoss og Geysi og að gæta þess að ákvæðum náttúruverndarlaga og sérlaga, friðlýsingarskilmála og stjórnunar- og verndaráætlana svæðanna sé fylgt. Landvörður kemur á framfæri upplýsingum og fræðir gesti um náttúru og sögu svæðanna, sinnir viðhaldi innviða og heldur við merktum gönguleiðum, sumar jafnt sem vetur. Hann þarf að vera viðbúinn ef slys ber að höndum og er gerð krafa um að sá eða sú sem verður ráðin(n) til starfa sæki skyndihjálparnámskeið eða hafi gild skyndihjálparréttindi.

Hæfnikröfur

Gerð er krafa um að umsækjendur hafi lokið námskeiði í landvörslu eða lokið öðru námi sem Umhverfisstofnun telur samsvarandi auk þess að búa yfir lipurð í mannlegum samskiptum.
Að öðru leyti verða eftirfarandi viðmið um þekkingu, reynslu og hæfni höfð að leiðarljósi við val á starfsfólki:
- Þekking á starfssvæði
- Reynsla af landvörslustörfum
- Tungumálakunnátta: Íslenska, enska, Norðurlandamál, önnur tungumál.
- Gild ökuréttindi.
- Vinnuvélapróf er kostur.
- Aðrir þættir s.s.: Reynsla af útivist og náttúrutúlkun, skálavarsla, björgunarsveitarstörf og leiðsöguréttindi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Báran, stéttarfélag hafa gert.
Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um starfið.
Gert er ráð fyrir að ráðning taki gildi frá 1. janúar 2020. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 02.12.2019

Nánari upplýsingar veitir

Valdimar Kristjánsson - valdimar.kristjansson@umhverfisstofnun.is - 5912000
Hákon Ásgeirsson - hakon@umhverfisstofnun.is - 5912000


Ust Svið náttúru, hafs og vatns Teymi þjóðgarðs og náttúruverndar suður
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík


Sækja um starf Til baka