Landvarsla Þjóðgarðinum Snæfellsjökli

Umhverfisstofnun leitar að heilsárs starfsmanni til að sinna landvörslu í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Starfsemin fer fram á utanverðu Snæfellsnesi, í þjóðgarðinum, gestastofunni Malarrifi og friðlýstu svæðunum á Búðum og ströndinni við Arnarstapa og Hellna.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felst í að gæta þess að ákvæði náttúruverndarlaga, sérlaga, friðlýsingarskilmála og stjórnunar- og verndaráætlana svæðanna séu virt. Starfsmaðurinn kemur á framfæri upplýsingum og fræðir gesti um náttúru og sögu svæðanna, viðhald innviða og heldur við merktum gönguleiðum.
Starfsmaðurinn þarf að vera viðbúinn ef slys ber að höndum og er gerð krafa um að sá sem ráðinn verður til starfa sæki skyndihjálparnámskeið eða hafi gild skyndihjálparréttindi.

Hæfnikröfur

Gerð er krafa um að umsækjendur hafi lokið námskeiði í landvörslu eða hafi lokið öðru námi sem Umhverfisstofnun telur samsvarandi auk þess að búa yfir lipurð í mannlegum samskiptum. Að öðru leyti verða eftirfarandi viðmið um þekkingu, reynslu og hæfni höfð að leiðarljósi við val á starfsmanni:
- Þekking sem nýtist í starfi
- Þekking á starfssvæðinu
- Reynsla af landvörslustörfum
- Kunnátta í íslensku og ensku. Frekari tungumálakunnátta er kostur
- Gild ökuréttindi
- Aðrir þættir s.s.: Reynsla af útivist og umhverfistúlkun, skálavarsla, björgunarsveitarstörf og leiðsöguréttindi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkalýðsfélag Suðurlands hafa gert.
Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um starfið. Sérstök athygli er vakin á því að Umhverfisstofnun leggur ekki til húsnæði fyrir heilsársstarfsfólk. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 17.12.2018

Nánari upplýsingar veitir

Jón Björnsson - jonb@umhverfisstofnun.is - 5912000


Ust Svið náttúruauðlinda - Friðlýst svæði
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík


Sækja um starf Til baka