Leiðandi sérfræðingur á sviði greiðslna fyrir heilbrigðisþjónustu (DRG)

Sjúkratryggingar Íslands auglýsa starf leiðandi sérfræðings í Heilbrigðisþjónustudeild á sviði fjármögnunarkerfis sjúkrahúsa (DRG). Heilbrigðisþjónustudeild sér um framkvæmd samninga vegna heilbrigðisþjónustu, s.s. vegna þjónustu sjúkrastofnana, sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks, sjúkraflutninga o.fl. Sérfræðingurinn mun gegna lykilhlutverki í þróun á greiðslum vegna þjónustu sjúkrahúsa (DRG). 

Sjúkratryggingar eru lykilstofnun í íslensku heilbrigðiskerfi. Við tryggjum réttindi sjúkratryggðra og aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu með það markmið að leiðarljósi að vernda heilbrigði og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hæfnikröfur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og sérstakt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni eru hvattir til að sækja um starfið. 

Sótt er um starfið á Starfatorgi ríkisins á www.starfatorg.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar niðurstaða um ráðningu liggur fyrir. Ráðning tekur mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar. Umsókn gildir í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. Upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar¿www.sjukra.is.

Starfshlutfall er 100 - 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 29.04.2024

Nánari upplýsingar veitir

Ingveldur Ingvarsdóttir, deildarstjóri - ingveldur.ingvarsdottir@sjukra.is - 515-0000
Ingibjörg Kr Þorsteinsdóttir, sviðsstjóri - ingibjorg.thorsteinsdottir@sjukra.is - 515-0000


SJTR Heilbrigðisþjónustudeild
Vínlandsleið 16
150 Reykjavík


Sækja um starf Til baka