Landgræðsla ríkisins - héraðsfulltrúi

Landgræðsla ríkisins óskar eftir að ráða héraðsfulltrúa á landverndarsvið með aðalstarfssvæði á Vesturlandi og Vestfjörðum með aðsetur á Hvanneyri. Hann þarf að hafa sveigjanleika og vera tilbúinn til að taka þátt í þróun starfsins og breytingum sem kunna að verða á starfinu og vinnustaðnum.

Landgræðsla ríkisins er þekkingar- og þjónustustofnun. Markmið hennar eru verndun gróðurs og jarðvegs og bætt landgæði. Stofnunin starfar samkvæmt lögum um landgræðslu nr. 17/1965 og lögum um varnir gegn landbroti nr. 91/2002.

Helstu verkefni og ábyrgð

- Öflun upplýsinga, ráðgjöf og eftirlit með verkefnum í Bændur græða landið, Landbótasjóði Landgræðslunnar og öðrum landgræðsluverkefnum
- Áætlanagerð og umsjón landgræðsluverkefna á starfssvæðinu
- Vinna við verkefni um endurheimt votlendis
- Vöktun á ástandi gróðurs og jarðvegs og fylgjast með að lögum um landgræðslu sé framfylgt
- Aðstoð við gerð beitar- og uppgræðsluáætlana fyrir einstakar bújarðir og stærri svæði
- Skráning landgræðsluaðgerða og mat á árangri
- Fræðsla og ráðgjöf til sveitarstjórna, landnotenda, skóla og almennings

Hæfnikröfur

- Krafist er BSc-prófs í náttúruvísindum, t.d. landnýtingu, beitarfræðum eða umhverfisfræðum
- Almenn þekking eða reynsla af landbúnaði
- Skipulagshæfni, sjálfstæði, sveigjanleiki og góð samstarfshæfni
- Góð kunnátta í notkun tölvu og upplýsingatækni
- Gott vald á íslensku, talaðri og ritaðri
- Þekking og reynsla af landgræðslustarfi er kostur
- Þekking og reynsla af notkun landupplýsingakerfa er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.
Megin starfssvæðið er Vesturland og Vestfirðir og starfinu geta fylgt talsverð ferðalög. Starfið hentar bæði konum og körlum.
Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf 1. mars 2018.

Umsókn skal fylla út og senda rafrænt. Ferilskrá og afrit af prófskírteini skal fylgja. Einnig má senda umsókn til Landgræðslu ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hella.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.

Heimasíða

Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2018

Nánari upplýsingar veitir

Árni Bragason - arni.bragason@land.is - 488 3000
Gustav Magnús Ásbjörnsson - gustav@land.is - 488 3000


LAND Landverndarsvið
Gunnarsholti
851 Hella


Sækja um starf Til baka